Fótbolti

Moldríkur Rússi hefur áhuga á Ragnari

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ragnar í baráttu við Karim Benzema, leikmann Real Madrid.
Ragnar í baráttu við Karim Benzema, leikmann Real Madrid. Nordic Photos / Getty
Samkvæmt Ekstra Bladet í Danmörku hefur rússneska félagið Krasnodar gert FC Kaupmannahöfn tilboð í landsliðsmanninn Ragnar Sigurðsson.

FCK staðfesti í gær að félagið hefði fengið tilboð í Ragnar en í morgun var fullyrt að tilboðið væri upp á 800 milljónir króna.

Krasnodar er í sjötta sæti rússnesku úrvalsdeildarinnar með 33 stig eftir nítján umferðir. Liðið er sjö stigum á eftir toppliðum Zenit og Lokomotiv Moskvu.

Alls eru leikmenn frá tólf löndum í leikmannahópi Krasnodar. Félagið keypti sænska landsliðsmanninn Andreas Granqvist í sumar frá Genoa á Ítalíu og þá eru fjórir Brasilíumenn á mála hjá því.

Félagið er í eigu Sergei Galitsky sem er í hópi 20 auðugustu manna Rússlands. Eigur hans samkvæmt Forbes-viðskiptaritinu voru metnar á tæpa þúsund milljarða króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×