Fótbolti

Real Madrid þremur stigum frá toppnum

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Nordic Photos / Getty
Real Madrid lagði Espanyol 1-0 í kvöld í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Pepe skoraði eina mark leiks í seinni hálfleik.

Real Madrid nýtti sér það að Barcelona og Atletico Madrid gerðu markalaust jafntefli í gær og er nú aðeins þremur stigum á eftir toppliðunum tveimur.

Real Madrid hefur nú unnið þrjá leiki í röð í deildinni og er komið af enn meiri hörku í baráttuna um titilinn en liðið þurfti svo sannarlega að hafa fyrir sigrinum í kvöld.

Pepe skoraði eina markið þegar hann skallaði aukaspyrnu Luka Modric í netið á 55. mínútu.

Espanyol er í 11. sæti deildarinnar með 22 stig eða helmingi færri stig en Real Madrid sem er í þriðja sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×