Fótbolti

Ronaldo skoraði í sigri Real Madrid

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. Mynd/NordicPhotos/Getty
Cristiano Ronaldo hélt upp á það að hafa fengið Gullbolta FIFA á mánudagskvöldið með því að skora annað mark Real Madrid í 2-0 sigri á Osasuna í spænsku bikarkeppninni í kvöld. Þetta var seinni leikur liðanna og Real Madrid vann samanlagt 4-0.

Ronaldo skoraði fyrra mark Real Madrid á 21. mínútu þegar hann skoraði beint úr aukaspyrnu. Ronaldo skoraði 69 mörk í 59 leikjum á árinu 2013 fyrir bæði Real Madrid og portúgalska landsliðinu.

Angel di Maria skoraði seinna markið á 56. mínútu eftir sendingu frá Jese Rodriguez. Cristiano Ronaldo fékk hvíld eftir rúmlega klukkutíma leik en Gareth Bale kom inná fyrir hann.

Fabio Coentrao fékk sitt annað gula spjald fimm mínútum fyrir leikslok og Real Madrid liðið endaði því leikinn manni færri.

Real Madrid mætir Espanyol í átta liða úrslitunum sem fara fram 22. og 29. janúar næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×