Fótbolti

Komst að því hverjir mínir vinir eru í raun

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty
Carles Puyol er ánægður með að geta kvatt erfitt ár en hann missti af stórum hluta ársins 2013 vegna þrálátra meiðsla.

Puyol, fyrirliði og lykilmaður í velgengni Barcelona síðustu ár, hefur aðeins komið við sögu í þremur deildarleikjum Barcelona á tímabilinu til þessa.

„2013 var mjög erfitt ár fyrir mig. Ég lærði þó margt og komst að því hverjir væru mínir vinir í raun,“ skrifaði Puyol á Twitter-síðu sína. „Eigið heilbrigt og gott ár 2014!“

Puyol er 35 ára gamall og vonast til þess að fá að spila meira með Barcelona á nýju ári. Liðið trónir á toppi deildarinnar á Spáni með 46 stig eftir sautján leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×