Handbolti

Enginn Nagy gegn Íslandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nagy í leik með Ungverjum.
Nagy í leik með Ungverjum. Nordic Photos / Getty
Ungverjaland verður án eins síns sterkasta leikmanns en Laszlo Nagy er enn að glíma við meiðsli í hné.

Nagy lék Íslendinga grátt þegar að liðin mættust í fjórðungsúrslitum Ólympíuleikanna í Lundúnum árið 2012. Hann skoraði níu mörk í leiknum sem Ungverjaland vann, 34-33.

„Ég er mjög leiður yfir þessum slæmu fréttum,“ skrifaði Nagy á Facebook-síðuna sína en auk hnémeiðslanna er hann með brotið bein í fæti. Hann þarf af þeim sökum að gangast undir aðgerð.

Nagy meiddist í leik með Veszprem gegn Celje Lasko í Meistaradeild Evrópu í nóvember síðastliðnum.

Ísland er einnig í riðli með Noregi og Spáni en strákarnir okkar mæta Ungverjum í Álaborg þann 14. janúar næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×