Fótbolti

Barcelona vinsælasta félag heims á fésbókinni

Mynd/NordicPhotos/Getty
Barcelona er komið með 50 milljónir fylgjenda á fésbókinni og telst nú vera vinsælasta félag heims á samskiptamiðlinum útbreidda. Þetta kemur fram á heimasíðu spænsku meistaranna.

Barcelona er nokkuð á undan Real Madrid sem er með 46,9 milljónir fylgjenda. Barcelona er nú janframt með 30. vinsælustu fésbókarsíðu í heimi.

Flestir fylgjendur Barcelona koma frá Indónesíu eða 4,7 milljónir. Spænska félagið á einnig marga fylgjendur í Mexíkó (3,5 milljónir), Brasilíu (2,5 milljónir) og Bandaríkjunum (2,1 milljón).

Hvorugt félagið á þó eitthvað í Cristiano Ronaldo, leikmann Real Madrid, sem er með 69 milljónir fylgjenda á fésbókinni. Barcelona-maðurinn Lionel Messi er líka vinsælli en félagið sitt enda með 52 milljónir fylgjenda á fésbókinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×