Fótbolti

Koke skaut Atlético upp fyrir Barcelona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Koke fagnar hér sigurmarki sínu.
Koke fagnar hér sigurmarki sínu. Mynd/NordicPhotos/Getty
Atlético Madrid er komið með þriggja stiga forskot á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir 1-0 útisigur á Málaga í kvöld. Barcelona getur náð toppsætinu á ný með sigri á Elche á morgun.

Atlético Madrid hefur átt magnað tímabil til þessa undir stjórn Argentínumannsins Diego Simeone en þetta var sextándi sigur liðsins í átján leikjum.

Atlético Madrid hefur nú unnið fimm deildarleiki í röð og tókst með þessum sigri að setja pressu á Börsunga á morgun.

Koke, 21 árs uppalinn miðjumaður, skoraði sigurmarkið í leiknumk tuttugu mínútum fyrir leikslok. Þetta var fjórða deildarmark hans á leiktíðinni en hann hefur einnig gefið 9 stoðsendingar í 18 leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×