Fótbolti

Ronaldo með tvö undir lokin í seiglusigri Real

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Gareth Bale og Cristiano Ronaldo komu við sögu í kvöld.
Gareth Bale og Cristiano Ronaldo komu við sögu í kvöld. Nordic Photos / Getty
Real Madrid lagði Celta Vigo að velli 3-0 í lokaleik 18. umferðar spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld. Þrjú mörk í síðari hálfleik skiluðu stigunum til Madrídinga.

Markalaust var á Estadio Santiago Bernabeu þar til á 67. mínútu. Þá skoraði Karim Benzema með skoti af stuttu færi og var 65 þúsund áhorfendum, flestir á bandi heimamanna, létt. Fram að því höfðu gestirnir fengið fín færi til að ná forystunni en fóru afar illa að ráði sínu.

Portúgalinn Cristiano Ronaldo bætti við tveimur mörkum á síðustu tíu mínútum leiksins. Hið síðara skoraði hann eftir undirbúning varamannsins Gareth Bale en öll mörkin komu eftir að Walesverjinn kom inn á á 65. mínútu.

Real Madrid hefur 44 stig og er fimm stigum á eftir toppliðum Atletico Madrid og Barcelona. Celta Vigo er í bullandi botnbaráttu með 16 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×