Fótbolti

Messi í hóp á morgun

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Messi á æfingu í síðustu viku.
Messi á æfingu í síðustu viku. Nordic Photos / Getty
Lionel Messi verður í leikmannahópi Barcelona sem mætir Getafe í spænsku bikarkeppninni annað kvöld.

Argentínumaðurinn knái hefur ekki spilað með Börsungum síðan hann tognaði í lærvöðva í nóvember síðastliðnum.

Hann æfði af fullum krafti með félögum sínum í gær en Gerardo Martino, stjóri liðsins, gæti freistast til að hvíla Messi fyrir mikilvægan deildarleik gegn Atletico Madrid um helgina.

„Besti leikmaður heims mun hafa áhrif á okkar lið. Við verðum bara enn betri,“ sagði Martino í viðtali á heimasíðu Barcelona.

Martino hefur úr fjölda öflugra sóknarmanna að velja fyrir leikinn á morgun, svo sem Neymar, Alexis Sanchez og Pedro.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×