Fótbolti

Jafnt hjá Valencia og Atletico í bikarnum

Raul Garcia skorar mark Atletico í kvöld.
Raul Garcia skorar mark Atletico í kvöld. nordicphotos/afp
Valencia og Atletico Madrid skildu jöfn, 1-1, í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar í kvöld.

Það var Raul Garcia sem kom Atletico yfir á 72. mínútu. Allt stefndi í sigur Atletico er portúgalski framherjinn Helder Postiga jafnaði fyrir Valencia á síðustu mínútu leiksins.

Atletico á stórleik um næstu helgi er liðið tekur á móti Barcelona í uppgjöri toppliðanna á Spáni en þau eru með sama stigafjölda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×