Bíó og sjónvarp

Segist ekki hafa verið með læti

Ugla Egilsdóttir skrifar
Steve McQueen er leikstjóri.
Steve McQueen er leikstjóri.
Gagnrýnandinn Armond White vísar á bug ásökunum um að hann hafi verið með læti á meðan á þakkarræðu Steve McQueen stóð.

Vísir greindi frá því hér að Armond hefði gripið inn í ræðu leikstjórans við verðlaunaafhendingu með ókvæðisorðum.

Steve McQueen fékk leikstjórnarverðlaun á verðlaunahátíð New York Film Critics Circle.

Joshua Rothkopf, forstjóri New York Film Critics Circle, skrifaði afsökunarbréf til Steve McQueen og fleira fólks þar sem hann harmaði atvikið, og þá sérstaklega að einhver tengdur samtökunum hafi valdið usla. Armold White hefur áður gegnt stöðu forstjóra samtakanna.

Armond vill meina að ummælin sem honum eru eignuð hafi verið upplogin, og því miður hafi fréttaflutningur af þeim skyggt á frægðarsól marga verðugra verðlaunahafa hátíðarinnar.

Armond kallaði verðlaunamynd Steve McQueen 12 Years a Slave pyntingaklám í ritdómi.

Armond er þekktur fyrir að synda á móti straumnum í dómum sínum um kvikmyndir. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×