Lífið

Framíköll undir þakkarræðu

Ugla Egilsdóttir skrifar
Steve McQueen.
Steve McQueen.
Gagnrýnandinn Arnold White greip fram í þakkarræðu Steve McQueen þegar sá síðarnefndi tók við leikstjórnarverðlaunum fyrir myndina 12 Years a Slave.

Verðlaunin voru veitt af New York Film Critics Award Circle. Arnold hrópaði ókvæðisorð á meðan á ræðu Steve McQueen stóð.

Arnold kallaði myndina pyntingaklám í gagnrýni sinni á myndinni. Virðist honum hafa brugðið við að Steve McQueen hafi fengið verðlaun þrátt fyrir varnaðarorð hans.

Steve hægði ekki á ræðu sinni og ekki er víst að hann hafi heyrt í gagnrýnandanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×