Fótbolti

Messi með tvö mörk í fyrsta leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi kom inná sem varamaður í kvöld en skoraði engu að síður tvö mörk.
Lionel Messi kom inná sem varamaður í kvöld en skoraði engu að síður tvö mörk. Mynd/AFP
Argentínumaðurinn Lionel Messi kom inná sem varamaður og skoraði tvö mörk í blálokin þegar Barcelona vann 4-0 sigur á Getafe í kvöld í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum spænska bikarsins.

Lionel Messi hefur ekkert spilað síðan 10. nóvember en hann kom inná sem varamaður fyrir Andrés Iniesta á 64. mínútu en mínútu áður hafi Cecs Fabregas koomið Barcelona í 2-0 með sínu öðru marki í leiknum.

Messi skoraði tvö síðustu mörkin í leiknum, það fyrra á 90. mínútu og það síðasta á annarri mínútu í uppbótartíma.

Barcelona er þar með komið með annan fótinn í átta liða úrslit keppninnar. Messi fór í meðferð í heimalandi sínu til að ná sér góðum af ítrekuðum tognunum aftan í læri og það er ekki hægt að segja annað en að hann byrji vel eftir meiðslin.

Mynd/AFP
Mynd/AFP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×