Fótbolti

Alonso áfram í Madríd

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Það varð ljóst í gær að Xabi Alonso verður áfram í herbúðum spænsku risanna í Real Madrid.

Alonso tilkynnti á Twitter-síðu sinni að hann hafi skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið en hann kom til Madrídar frá Liverpool árið 2009.

Gamli samningur Alonso, sem er 32 ára gamall, hefði runnið út í lok tímabilsins og var orðaður við sitt gamla félag, Liverpool, í haust.

Samkvæmt spænskum fjölmiðlum fær Alonso rúmar 900 milljónir króna í árslaun og félagið á þess kost eftir tvö ár að framlengja samninginn um eitt ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×