Fótbolti

Real Madrid fer með tveggja marka forskot í seinni leikinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Karim Benzema og Cristiano Ronaldo fagna með félögum sínum í kvöld.
Karim Benzema og Cristiano Ronaldo fagna með félögum sínum í kvöld. Mynd/NordicPhotos/Getty
Real Madrid vann 2-0 sigur á Osasuna í kvöld í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar en seinni leikurinn fer síðan fram á heimavelli Osasuna-liðsins.

Karim Benzema og Jesé skoruðu mörk Real Madrid í kvöld en þeir Luca Modric og Cristiano Ronaldo gáfu stoðsendingarnar.

Karim Benzema skoraði markið sitt með skalla eftir aukaspyrnu Luca Modric á 19. mínútu en Jesé kom Real Madrid í 2-0 á 60. mínútu eftir sendingu Ronaldo.

Barcelona er í betri stöðu en Real eftir 4-0 sigur á Getafe í fyrri leik sínum í gærkvöldi en Atlético Madrid gerði 1-1 jafntefli á útivelli á móti Valencia.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×