Menning

Tilnefningar til Fjöruverðlauna tilkynntar

Vigdís Grímsdóttir og Þórunn Erlu og Valdimarsdóttir eru tilnefndar.
Vigdís Grímsdóttir og Þórunn Erlu og Valdimarsdóttir eru tilnefndar. Fréttabalðið/Pjetur og GVA
Dómnefndir Fjöruverðlaunanna kynntu niðurstöður sínar í Borgarbókasafninu í gær. Fjöruverðlaunin eru bókmenntaverðlaun kvenna og eiga uppruna sinn í bókmenntahátíð sem haldin var í fyrsta sinn vorið 2007 að frumkvæði hóps kvenna innan Rithöfundasambands Íslands. Verðlaunin hafa verið veitt árlega síðan.



Verðlaunin eru veitt í þremur flokkum: Fagurbókmenntir, fræðibækur og barna- og unglingabækur. Frá árinu 2011 hafa verið tilnefndar þrjár bækur í hverjum flokki áður en verðlaunin eru veitt.



Eftirfarandi höfundar og bækur hlutu tilnefningu að þessu sinni:



Barna - og unglingabækur:

Sif Sigmarsdóttir: Freyju saga – Múrinn. Útg. Mál og menning

Sigrún Eldjárn: Strokubörnin á Skuggaskeri. Útg. Mál og menning

Lani Yamamoto: Stína stórasæng. Útg. Crymogea



Fagurbókmenntir

Heiðrún Ólafsdóttir: Af hjaranum. Útg. Ungmennafélagið Heiðrún

Vigdís Grímsdóttir: Dísusaga – Konan með gulu töskuna. Útg. JPV

Þórunn Erlu- og Valdimarsdóttir: Stúlka með maga – skáldættarsaga. Útg. JPV



Fræðibækur og rit almenns eðlis

Guðný Hallgrímsdóttir: Sagan af Guðrúnu Ketilsdóttur. Einsögurannsókn á ævi 18. aldar vinnukonu. Útg. Háskólaútgáfan

Gréta Sörensen: Prjónabiblían. Útg. Vaka Helgafell

Jarþrúður Þórhallsdóttir: Önnur skynjun – ólík veröld. Lífsreynsla fólks á einhverfurófi. Útg. Háskólaútgáfan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.