Bíó og sjónvarp

Home Alone og Die Hard um helgina

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kvikmyndirnar Home Alone og Die Hard verða sýndar um helgina í Smárabíói og Háskólabíói. Myndirnar eru fyrir löngu orðnar klassískar á þessum árstíma og margir sem geta ekki annað en að smella þeim í tækið í jólaundirbúningnum.

Home Alone fjallar um drenginn Kevin, sem leikinn er af Macaulay Culkin, sem er skilinn eftir einn heima af fjölskyldu sinni fyrir mistök. Tveir óprúttnir bófar, sem túlkaðir eru af Joe Pesci og Daniel Stern, sjá sér leik á borði og reyna að brjótast inn á heimili Kevins sem kallar ekki allt ömmu sína.

Grjótharður Bruce Willis.
Í Die Hard neyðist harðhausinn John McClane, sem leikinn er af Bruce Willis, að bjarga eiginkonu sinni og fjölda annarra úr klóm glæpamannsins Hans Gruber. Hörkuspennandi jólamynd en aðalhasarinn gerist á sjálft aðfangadagskvöld.

Miði á hvora mynd kostar 800 krónur en hægt er að fá miða á báðar myndirnar saman á 1.000 krónur. Þá bjóða kvikmyndahúsin upp á sérstakt fjölskyldutilboð – miðann á 500 krónur ef keyptir eru fjórir miðar eða fleiri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×