Menning

Ljóðarútan verður á ferðinni í kvöld

Leiðsögukonan Sigurlín Bjarney Gísladóttir skáld verður allsráðandi í ljóðarútunni.Fréttablaðið/GVA
Leiðsögukonan Sigurlín Bjarney Gísladóttir skáld verður allsráðandi í ljóðarútunni.Fréttablaðið/GVA
Lokaviðburður Lestrarhátíðar í ár fer fram í ljóðarútu sem keyrir um í borgarmyrkrinu í kvöld. Ljóðin lögðu af stað í ferðalag um borgina þann 1. október þegar Lestrarhátíð hófst og því vel við hæfi að ljúka mánuðinum á ljóðrænum rúnti með einvalaliði skálda.



Ljóðarútan fer frá Hörpu klukkan 20 og tekur ferðin um eina og hálfa klukkustund. Sigurlín Bjarney Gísladóttir, skáld og leiðsögukona, fer með gesti um upplýsta borgina í kvöldmyrkrinu og skáldin stíga um borð um stund þar til þau hverfa aftur út í næturmyrkrið. Meðal skáldanna eru Bjarki Karlsson, Bragi Ólafsson, Gerður Kristný, Heiða Eiríks, Kári Tulinius, Sindri Freysson, Valgerður Þóroddsdóttir og Þórdís Gísladóttir.



Ferðinni lýkur við Hörpu klukkan 21.30 þar sem ljóðskáld frá fyrri tíð stígur um borð og biður gesti um að nefna sig.



Sætafjöldi er takmarkaður og er áhugasömum bent á að nauðsynlegt er að bóka far með rútunni með því að senda póst á netfangið bokmenntaborgin@reykjavik.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.