Menning

Bjarki enn á toppnum

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Bjarki Karlsson
Ljóðabók Bjarka Karlssonar, Árleysi alda, trónir á toppi metsölulista Eymundsson aðra vikuna í röð. Bjarki hlaut sem kunnugt er Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir handritið og lesendur virðast sammála dómnefnd verðlaunanna um að hér sé eðalbók á ferð.

Maður sem heitir Ove er komin í annað sæti eftir að hafa einokað toppsætið vikum saman, en skammt undan eru jólaskáldsögurnar, Mánasteinn Sjóns í þriðja sæti og Glæpurinn eftir Árna Þórarinsson í því fjórða. Í fimmta sæti situr bókin Iceland Small World eftir Sigurgeir Sigurjónsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.