Menning

Le Monde prísar íslenskar söguhetjur

Bergsveinn Birgisson Svar við bréfi Helgu.
Bergsveinn Birgisson Svar við bréfi Helgu.
Íslenskir rithöfundar halda áfram að gera það gott í Frakklandi. Nú eru tuttugu þúsund eintök seld þarlendis af bók Bergsveins Birgissonar Svar við bréfi Helgu og bók Hallgríms Helgasonar Konan við 1000° hefur einnig hrifið Frakka.



Stórblaðið Le Monde birti nýverið grein eftir Catherine Simon sem gerir báðar bækurnar að umtalsefni, auk einnar bókar frá Quebec. Söguhetjur allra bókanna eru vel við aldur og veltir greinarhöfundur því fyrir sér hvort kuldinn varðveiti söguhetjur svona vel og því komi aldraðar hetjur úr norðrinu.



Simon er yfir sig hrifin af Bjarna, söguhetjunni í Svar við bréfi Helgu, segir að hann sé í senn feiminn og stórfenglegur og að hann verði að fá að eiga það, að þó hann hafi svarað of seint þá hafi hann samt svarað.



Hún segir skáldskap Hallgríms sveiflast á milli pönks og ljóðrænu og kallar bókina „roman-fleuve“ eða skáldsögu-fljót. Einnig dáist hún að því að skáldin gætu verið börn söguhetjanna – sem kuldinn hefur varðveitt svo vel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.