Menning

Sigurganga Sjóns í Bandaríkjunum

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Bækur sjóns  hans hafa vakið hrifningu í BNA.
Bækur sjóns hans hafa vakið hrifningu í BNA.
Skáldið Sjón hefur heldur betur verið að gera það gott í Bandaríkjunum undanfarið. Farrar, Straus & Giroux, sem er eitt virtasta forlag Bandaríkjanna og þar með heimsins, gaf samtímis út þrjár bækur Sjóns – sem er afar fáheyrt. Bækurnar Rökkurbýsnir, Argóarflísin og Skuggabaldur hafa þegar vakið gríðarlega athygli og fengið frábæra dóma. Verk hans hafa nú verið þýdd á 25 tungumál.

Sjón fór utan og heimsótti fjórar borgir á vesturströnd Bandaríkjanna; Seattle, Portland, San Fransisco og Santa Barbara. Þar hélt hann fyrirlestra og fór í ótal viðtöl, þar á meðal heilsíðuviðtal í Newsweek. Einn helsti bókmenntagagnrýnandi Bandaríkjanna, Alan Cheuse, fjallaði um verk hans á NPR-útvarpsstöðinni. Í New York var síðan útgáfuviðburður í Scandianvia House þar sem Björk kynnti hann til leiks og enski rithöfundurinn Hari Kunzru tók við hann viðtal. Um það var skrifað í The Paris Review.

„Það er mjög gefandi og ögrandi að sjá verk sín gefin út fyrir jafn kröfuharða bókmenntalesendur og er að finna í Bandaríkjunum,“ segir Sjón. „Upplestrarferðin var einmitt sérstaklega fróðleg þegar kom að því að hitta þetta fólk í mörgum af þeim frábæru bókabúðum sem enn standa vörð um bókina og eru á móti studdar af dyggum viðskiptavinum sínum sem versla þar og mæta á viðburði.“

Hvers vegna heldurðu að bandarískir lesendur hrífist svo mjög af verkum þínum?

„Bandarískar bókmenntir fjalla gjarnan um líf og sögur fólks í smærri plássum í því gríðarstóra landi, og ég komst að því að höfundi sem segir sögur frá litlu landi langt í burtu er velkomið að láta á þær reyna líka.“

Ritdómarnir í stórblöðum USA og Kanada hafa allir verið mjög umfangsmiklir, upp í heilsíður. Ritdómar í veftímaritum hafa einnig verið umfangsmiklir og fjallað um allar þrjár bækurnar og kynnt höfundinn til leiks. Nýjast er það að frétta af áhuga erlendra útgefanda á verkum Sjóns að útgáfurétturinn að nýju skáldsögunni hans, Mánasteini sem ekki er komin út, hefur þegar verið seldur til Finnlands og Danmerkur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.