Íslenski boltinn

Yrði seint fyrirgefið í Vesturbænum ef ég segði að KR-hjartað væri farið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Anna Björk er þjálfari 5. flokks kvenna hjá Gróttu.
Anna Björk er þjálfari 5. flokks kvenna hjá Gróttu. Mynd/Daníel
 „Maður verður bara gráðugri þegar maður vinnur titil. Maður verður aldrei saddur,“ segir miðvörðurinn Anna Björk Kristjánsdóttir hjá Stjörnunni. Anna Björk og félagar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn á miðvikudagskvöldið með 4-0 sigri á Val þótt enn sé fjórum umferðum ólokið. Liðið hefur skorað 50 mörk í fjórtán leikjum en aðeins fengið á sig fjögur mörk. Allt stefnir í að liðið bæti metið yfir fjölda marka fengin á sig frá því sumarið 2011, þegar liðið varð í fyrsta skipti Íslandsmeistari og fékk á sig 14 mörk.

„Maður er farinn að setja háar kröfur,“ segir Anna Björk og viðurkennir að það sjóði á henni þegar liðið fær á sig mark. „Ég viðurkenni það. Við hugsum þetta þannig að ef við fáum á okkur mark þá erum við að gleyma okkur.“

Miðvörðurinn hefur farið á kostum í hjarta varnarinnar ásamt hinni átján ára Glódísi Perlu Viggósdóttur. Þá hefur Sandra Sigurðardóttir verið öryggið uppmálað í marki liðsins.

Harpa hefur bætt varnarleik sinn
Anna Björk er yfirvegaður og kraftmikill leikmaður.Mynd/Daníel
„Allar í liðinu vinna varnarvinnuna. Sú samheldni hefur skilað okkur þessum árangri. Miðjumennirnir vinna líka til baka og Harpa (Þorsteinsdóttir) hefur líka bætt varnarvinnuna mikið,“ segir Anna Björk um leiðina að velgengni í varnarleik Garðabæjarliðsins.

Anna Björk gekk í raðir Stjörnunnar frá KR veturinn 2008. Þá hafði hún setið á bekknum hjá Vesturbæjarliðinu og taldi tíma til kominn að söðla um.

„KR á hlut í mér og mér yrði seint fyrirgefið í Vesturbænum ef ég segði að KR-hjartað væri farið,“ segir Anna Björk. Hún er þó pottþétt á að ákvörðunin hafi verið rétt, enda hefur hún leikið stórt hlutverk hjá Stjörnunni síðan.

„Það var kominn smá pirringur og mér fannst ég þurfa tækifæri til að bæta mig í fótbolta. Þau fékk ég ekki hjá KR og þurfti að fá að spila og afla mér reynslu.“

Anna Björk var valin í A-landslið Íslands í fyrsta skipti í sumar og í kjölfarið var hún í 23 manna landsliðshópi Íslands á EM í Svíþjóð.

„Það var mjög skemmtilegur mánuður,“ segir Anna Björk um þann hluta júní þegar hún var valin í lokahópinn. Skömmu síðar fékk hún að vita að hún hefði komist í gegnum inntökuprófið í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands. Þar situr hún á skólabekk með Söndru.

Anna Björk Kristjánsdóttir.Mynd/Daníel
Með Söndru í sjúkraþjálfaranámi í Háskóla Íslands

„Það var mjög skemmtilegt að við skyldum báðar komast inn,“ segir Anna en aðeins 25 komast í sjúkraþjálfun á hverju ári. Hún segir þær Söndru hafa unnið saman í undirbúningi fyrir inntökuprófið, mikið rætt saman og það hafi örugglega einhver áhrif á hve vel þær nái saman inni á vellinum. Henni líst vel á sjúkraþjálfaranámið.

Vill ekki sitja á bekknum

„Þetta er inni á áhugasviðinu. Svona getur maður líka haldið áfram lengi í fótboltanum og verið á bekknum sem sjúkraþjálfari.“

Anna Björk, sem einnig þjálfar 5. flokk kvenna hjá Gróttu, hefur verið aðeins undir radarnum í sumar. Athyglin hefur beinst að hinni ungu Glódísi Perlu auk Söndru í markinu.

„Það skiptir mig engu máli á meðan ég stend mig vel,“ segir Anna Björk.

Hún segir Glódísi frábæran leikmann og vonast til að þær geti staðið vaktina í vörninni hjá landsliðinu í framtíðinni.

„Það er ekki stefnan að vera alltaf á bekknum. Maður vill alltaf spila,“ segir Anna Björk sem enn á eftir að þreyta frumraun sína með A-landsliðinu.

Stjörnustelpur fá bikarinn ekki afhentan fyrr en í lokaumferðinni gegn Blikum. Hún segir marga hafa velt fyrir sér hvers vegna bikarinn hafi ekki verið afhentur eftir stórsigurinn á Val á miðvikudag sem var afar sætur.

„Það var ljúft að tryggja sér titilinn á móti Val og verður ljúft lyfta honum svo gegn Blikum. Í bæði skiptin á heimavelli,“ segir Anna Björk sigurreif.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×