Matur

Bollakökur með sykurlausri bláberjasultu

Marín Manda skrifar
María Krista Hreiðarsdóttir.
María Krista Hreiðarsdóttir.

Nú er sultutíðin gengin í garð og því tilvalið að útbúa sultur heima við. María Krista Hreiðarsdóttir er grafískur hönnuður og deilir hér uppskrift að einfaldri heimatilbúinni sultu sem er sykurlaus þótt ótrúlegt sé.

Bláberjasulta

450 gr bláber frosin eða fersk

25 gr Sukrin Melis Funksjonell

40 dropar vanillustevía

1 tsk. xanthan-gum



Setjið allt nema xanthan-gum í pott, hitið vel þar til berjablandan fer að malla, dreifið svo xanthan-gum yfir og hrærið stöðugt í þar til sultan er hæfilega þykk, 1-3 mínútur.

Hellið blöndunni í tvær góðar sultukrukkur og leyfið henni að kólna. Sultan er góð á vöfflur, í bakstur og margt fleira.



Bollakökur með bláberjasultu

4 stór egg

80 ml rjómi

100 gr Sukrin Funksjonell

40 - 45 gr kókoshveiti Funksjonell

8 tsk bláberjasulta heimatilbúin og sykurlaus

1 tsk vanilludropar

1/2 tsk sítrónusafi (valfrjálst)

1/2 tsk Xanthan Gum (valfrjálst)

Xanthan Gum er náttúrulegt þykkingarduft sem gerir mikið fyrir glúteinlausan bakstur. Gerir baksturinn þéttari og mýkri undir tönn.

Blandið saman eggjum og sukrin og þeytið í ca 5 mín.Bætið rjóma út í ásamt vanilludropum, sítrónusafa og stevíu. Bætið því næst kókoshveitinu og Xanthan Gum út í og leyfið deiginu að standa nokkrar mínútur.

Spreyjið um 8-9 muffinsform með Pam og sprautið deiginu ofan í hvert form hálfa leið, setjið eina tsk af sultu í hvert form og fyllið svo nánast formið upp að brún.

Bakast í 20-25 mín :) á 170 gráðu heitum ofni á blæstri í næstneðstu rim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.