Fótbolti

Leikmenn eru keyptir hægri vinstri

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Guðbjörg hefur ekki þurft að hirða boltann oft úr netinu undanfarnar vikur.
Guðbjörg hefur ekki þurft að hirða boltann oft úr netinu undanfarnar vikur. MynD/Guðmundur Svansson
Guðbjörg Gunnarsdóttir fór mikinn í marki íslenska landsliðsins á Evrópumótinu í Svíþjóð. Guðbjörg spilar með Avaldsnes í norsku úrvalsdeildinni en liðinu hefur vegnað vel undanfarnar vikur. Liðið hefur unnið fimm leiki af síðustu sex og aðeins fengið á sig tvö mörk. Liðið er komið í 5. sæti eftir erfiða byrjun.

„Við höfum verið öflugar fram á við allt tímabilið og alltaf líklegar til að skora. Skipulag í vörninni hefur ekki gengið jafnvel, sem er kannski skiljanlegt með svona marga útlendinga og ólíkan fótboltakúltúr,“ segir Guðbjörg.

Auk Guðbjargar leika Hólmfríður Magnúsdóttir, Mist Edvardsdóttir og Þórunn Helga Jónsdóttir með liðinu, sem er nýliði í efstu deild. Greinilegt er að liðið ætlar sér stóra hluti enda fjöldi erlendra leikmanna mikill.

„Ég held að það séu sautján útlendingar í liðinu,“ segir Guðbjörg en einnig eru norskar landsliðsstelpur í liðinu. „Það hefur verið erfitt að púsla þessu saman en við verðum betri með hverjum leiknum.“

Eins og gefur að skilja er mikil samkeppni um stöðu í byrjunarliðinu.

„Við erum nýbúin að fá kanadískan markvörð þannig að ég er með jafnmikla samkeppni og aðrir. Það eru allir á tánum og ekki gefið að neinn spili,“ segir Guðbjörg. Máli sínu til stuðnings bendir hún á að ástralskur landsliðsmaður hafi ekki komist í leikmannahópinn á dögunum. Sú hafi þurft að gera sér sæti í stúkunni að góðu.

„Það er mjög gaman að taka þátt í þessu og þetta er spennandi. Ég hef aldrei orðið vitni að jafnmiklu veldi í kvennafótbolta. Leikmenn eru keyptir hægri vinstri,“ segir Guðbjörg. Liðið fékk sex nýja leikmenn til liðsins í félagaskiptaglugganum. Þrjár landsliðskonur frá Brasilíu, tvo Þjóðverja og fyrrnefndan kanadískan markvörð. Sá hefur ekki enn spilað enda sjálfstraust Guðbjargar mikið í markinu eftir EM í Svíþjóð.

Hún þekkir þó vel það hlutskipti að þurfa að dúsa á bekknum, sem er aldrei skemmtilegt. „Ég tek að sjálfsögðu mjög vel á móti henni. Ég er náttúrulega fyrirliði og reyni að koma fram við alla eins. Hún hefur tekið þessu ágætlega og væntanlega vitað út í hvað hún var að fara.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×