Menning

Þrykkti kaffi á gólfinu í Árbæjarsafni

Kjartan Guðmundsson skrifar
Verkin á fyrstu einkasýningu Höllu Þórlaugar Óskarsdóttur eru unnin út frá kaffispádómum.
Verkin á fyrstu einkasýningu Höllu Þórlaugar Óskarsdóttur eru unnin út frá kaffispádómum. Fréttablaðið/Arnþór
„Titillinn á sýningunni vísar bæði til framtíðarinnar, að spádómurinn segir þér hvað, hvar eða hvernig þú verður, en líka til þess hvernig allir bera ábyrgð á eigin lífi og verða að breyta út frá eigin sannfæringu,“ segir myndlistarkonan Halla Þórlaug Óskarsdóttir. Halla opnar sína fyrstu einkasýningu í dag klukkan 13 í kaffihúsinu GÆS í Tjarnarbíói og ber hún titilinn Þú verður.

Halla Þórlaug, sem útskrifaðist úr myndlistardeild Listaháskólans (LHÍ) vorið 2012 og stundar nú meistaranám í ritlist við Háskóla Íslands, segir að verkin á sýningunni séu unnin út frá kaffispádómum. „Ég spáði í bolla fólks út frá kúnstarinnar reglum og þrykkti svo spádómana og myndirnar á grafíkpappír með aðferð sem kallast æting,“ útskýrir Halla og bætir við að myndirnar hafi hún þrykkt í gamla skólanum sínum, LHÍ, en textann þrykkti hún í Árbæjarsafni. „Á Árbæjarsafninu fékk ég að notast við gamla prentsmiðju eftir lokun. Það var mjög sérstakt að sitja í lyktinni þar og pressa spádóma í pappír. Hugmyndin að verkunum kviknaði út frá vangaveltum um myndlestur, sem mér finnst ekki ósvipað listinni að spá í bolla.“

Sýningin stendur yfir næstu tvær vikurnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.