Var svolítið "peppaður“ fyrir þennan leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. ágúst 2013 07:00 Haukur Helgi Pálsso skoraði 24 stig í sigrinum á Rúmenum í gær. Mynd/KkÍ/Kristinn Geir Pálsson
Íslenska körfuboltalandsliðið sýndi sitt rétta andlit í átta stiga sigri á Rúmenum, 72-64, í undankeppni EM 2015 í gær. Íslenska liðið á því enn möguleika á að komast upp úr riðlunum en tveir síðustu leikir íslenska liðsins fara fram í Laugardalshöllinni. Enginn lék betur í íslenska liðinu í gær en einmitt Haukur Helgi Pálsson sem skoraði 24 stig þar af 11 stig í fyrsta leikhlutanum sem íslenska liðið vann 25-10. „Það er flott að koma svona til baka eftir 30 stiga tap í Búlgaríu,“ sagði Haukur Helgi og bætti við: „Ég held að byrjunin hafi lagt grunninn að sigrinum. Við komum brattir út, spiluðum vel saman og náðum auðveldum körfum.“ Íslenska liðið komst í 16-2. Íslenska liðið komst mest 18 stig yfir en Rúmenarnir náðu að minnka muninn niður í þrjú stig. „Ég fékk aldrei þá tilfinningu að við værum að fara að tapa þessu,“ sagði Haukur sem hitti úr 9 af 16 skotum sínum. „Þetta er besti leikurinn minn. Ég var svolítið „peppaður“ fyrir þennan leik því ég spilað svo lítið í síðasta leik vegna villuvandræða. Ég þurfti að gefa af mér núna og standa mig. Það voru líka miklu fleiri að hjálpa til heldur en í síðasta leik og það voru allir að finna alla. Við vorum að finna glufur í þeirra vörn sem við nýttum okkur,“ sagði Haukur. Síðustu tveir leikir íslenska liðsins eru í Höllinni og liðið á enn möguleika á því að komast áfram. „Við þurfum bara að fá áhorfendurna í stúkuna til þess að hvetja okkur áfram og þá er allt hægt. Þetta var eins og við erum búnir að vera að spila í sumar. Við spiluðum ekki vel á móti Búlgaríu og það voru okkar mistök. Það gerist ekki aftur,“ sagði Haukum að lokum.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Áhorfandi fékk sex milljónir fyrir ótrúlegt skot Fótbolti Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - ÍA 3-0 | Stjarnan gerir atlögu að Evrópusætinu Íslenski boltinn Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Enski boltinn Ten Hag verði ekki rekinn Enski boltinn Dikembe Mutombo látinn Körfubolti Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni Enski boltinn Ætla að sniðganga leikinn við Víking Fótbolti „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn Simeone kennir Courtois um ólætin Fótbolti Spilar ekki gegn Arsenal eftir hávaðarifrildi Fótbolti Fleiri fréttir Dikembe Mutombo látinn Enginn „heimsendir“ verði Keflavík ekki Íslandsmeistari Teitur valdi besta Íslendinginn í Bónus deildinni Taka inn nýjan mann eftir stutt stopp Franck í Þorlákshöfn Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Sjá meira