Lífið

Komust í klikkaðar græjur frá Kraftwerk

Kristjana Arnarsdóttir skrifar
Þeir Berndsen og Hermigervill vinna að nýrri plötu. Titillag hennar er tekið upp með græjum sem áður voru í eigu Kraftwerk.
Þeir Berndsen og Hermigervill vinna að nýrri plötu. Titillag hennar er tekið upp með græjum sem áður voru í eigu Kraftwerk. Fréttablaðið/gva
„Þegar ég sá þessar græjur hugsaði ég með mér að ég yrði hreinlega að fá að nota þær," segir tónlistarmaðurinn Davíð Berndsen, sem um þessar mundir vinnur að gerð nýrrar plötu ásamt Sveinbirni Thorarensen, öllu þekktari undir listamannsnafninu Hermigervill.

Davíð var nýverið í Hollandi þar sem hann komst í kynni við heimamann sem hafði keypt græjur úr upptökustúdíói þýsku rafhljómsveitarinnar Kraftwerks. Það varð úr að Davíð fékk leyfi til þess að nota græjurnar við upptökur á eigin efni.

„Sveinbjörn bjó í Antwerpen og hann tók bara fyrstu lest yfir og við fórum strax að vinna í efninu," segir Davíð. Þeir félagar luku við titillag plötunnar og ber lagið heitið Planet Earth. „Þarna fengum við loksins þetta „sound" sem við vorum að leita að og er lagið undir miklum áhrifum frá Kraftwerk," bætir Davíð við.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem tvíeykið starfar saman en Sveinbjörn var Davíð innan handar við gerð plötunnar Lover in the Dark sem kom út árið 2009. Platan sem nú er í undirbúningi kemur með haustinu en titillagið, Planet Earth, fer í spilun á næstu dögum. Hann segir þá félaga deila gríðarlegum áhuga á gömlum græjum líkt og þeirri sem var í eigu Kraftwerk.

„Tónlistin sem við gerum er undir miklum áhrifum eitís-tónlistar og við erum aðallega að nota svona gamlar græjur. Við eyðum nánast öllum laununum okkar í að kaupa svona gamalt drasl," segir Davíð hress að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.