Menning

Viljum teygja okkur út til myndlistarsamfélagsins

Bergsteinn Sigurðsson skrifar
Ólöf K. Sigurðardóttir, Ragnar Kjartansson, Illugi Gunnarsson og Þóroddur Bjarnason.
Ólöf K. Sigurðardóttir, Ragnar Kjartansson, Illugi Gunnarsson og Þóroddur Bjarnason. Fréttablaðið/Arnþór
Nýtt og opnara ferli verður tekið upp við val á framlagi Íslands á Feneyjatvíæringinn í myndlist. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar efndi til í gær að viðstöddum Illuga Gunnarssyni, mennta- og menningarmálaráðherra.

Nýjungin felst í því að héðan í frá verður kallað eftir tillögum og stefnt er að því að velja úr innsendum tillögum þann listamann, eða þá listamenn, sem verða fulltrúar í þjóðarskála Íslands 2015. Með þessu fyrirkomulagi er horfið frá því lokaða ferli sem hingað til hefur verið viðhaft, en frá árinu 2007 hefur fagráð KÍM alfarið séð um val á fulltrúa þjóðarinnar.

„Við vildum teygja okkur út til myndlistarsamfélagsins og gefa öllum fagaðilum innan þess kost á að senda inn tillögur um fulltrúa á þennan umfangsmesta listviðburð í heimi,“ segir Þóroddur Bjarnason, formaður stjórnar KÍM. „Það má kannski segja að við séum að ræsta út „reykfylltu bakherbergin“, eins og gárungarnir segja. Lokað ferli skapar tortryggni, það er tilhneiging til að líta á það sem elítisma. Mér finnst þetta nútímaleg og lýðræðisleg leið og í anda dagsins í dag.“

Hið nýja fyrirkomulag leysir fagráðið ekki af hólmi og KÍM verður eftir sem áður ábyrgðaraðili skálans og annast alla umgjörð hans. „Þetta tryggir hins vegar að fleiri sjónarmið komast að og fleiri listamenn til álita.“

Spurður hvort þessi breyting sé vísir að enn opnara ferli í framtíðinni segir Þóroddur það vel koma til greina.

„Mér finnst heillandi hugmynd að leika sér að því hvernig á að velja fulltrúa á svona atburð sem er kostaður að stórum hluta fyrir skattfé, Með þessari nýjung erum við líka að varpa fram þeirri spurningu hvernig fólk vill hafa þetta, ekki bara hvaða listamenn eiga að fara utan heldur hreinlega hvers konar list við viljum senda á þennan viðburð og kynna í okkar nafni.“

Nánari upplýsingar um nýja fyrirkomulagið má finna á heimasíðu Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.