Menning

Brynja Þorgeirs tekur við Djöflaeyjunni

Álfrún Pálsdóttir skrifar
Brynja Þorgeirsdóttir tekur við Djöflaeyjunni í haust.
Brynja Þorgeirsdóttir tekur við Djöflaeyjunni í haust.
„Þetta leggst alveg gríðarlega vel í mig,“ segir fréttakonan Brynja Þorgeirsdóttir en hún var á dögunum ráðin ritstjóri menningarþáttar Ríkissjónvarpsins, Djöflaeyjunnar.

Brynja tekur við af Þórhalli Gunnarssyni sem er orðinn framleiðslustjóri hjá Saga Film. Brynja hefur starfað að hluta til í Kastljósinu í vetur samhliða meistaranámi í bókmenntafræði. „Starfið hentar mér því mjög vel. Ég hef vísvitandi verið að færa mig frá fréttunum yfir á menningarsviðið undanfarið og hlakka mikið til haustsins,“ segir Brynja sem ætlar þó ekki að umbylta efnistökum þáttarins.

„Þátturinn hefur sterkan grunn en það er alltaf hægt að efla og bæta. Það er því von á smá breytingum en þátturinn verður enn þá um menningu á mannamáli.“

Þrátt fyrir að taka ekki við fyrr en í haust situr Brynja ekki auðum höndum í sumar. Hún er að undirbúa skemmtiþætti um íslenska tungumálið ásamt Braga Valdimar Skúlasyni. Þættirnir eru að skandinavískri fyrirmynd og fara í framleiðslu í sumar. „Við erum enn þá að velta fyrir okkur heiti þáttanna en þar fjöllum við um tungumálið á fróðlegan og skemmtilegan hátt.“

Meðal umsjónarmanna Djöflaeyjunnar eru Vera Sölvadóttir, Guðmundur Oddur Magnússon, Sigríður Pétursdóttir og Símon Birgisson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.