Menning

Prófar í Ósló, Stokkhólmi og Prag

Freyr Bjarnason skrifar
Örn Árnason, Sigurður Sigurjónsson og Bjarni Haukur Þórsson sýna einleikinn í Kaldalóni.
Örn Árnason, Sigurður Sigurjónsson og Bjarni Haukur Þórsson sýna einleikinn í Kaldalóni.
Verið er að undirbúa sýningar á einleiknum How To Become Icelandic in 60 Minutes í Ósló, Stokkhólmi og í Prag.

„Við ætlum að prófa á þessum stöðum og sjá hvort það gengur vel. Við munum vinna með þar til gerðum framleiðendum, handritshöfundum og leikurum á hverjum stað,“ segir höfundurinn og leikarinn Bjarni Haukur Þórsson. Leikstjóri verksins er Sigurður Sigurjónsson.

Rúmlega sjötíu sýningar á einleiknum eru fyrirhugaðar á þessu ári í Kaldalóni í Hörpu. „Það voru tæplega sextíu sýningar í fyrra. Það var tilraunaverkefni sem gekk vonum framar og núna er þegar byrjað að tala um næsta ár líka,“ segir Bjarni Haukur en Örn Árnason mun leysa hann af í einhverjum sýningum vegna mikils sýningaálags.

Fyrsta sýningin í nýrri lotu verður 30. apríl. Að sögn Bjarna Hauks eru 20% áhorfenda í salnum yfirleitt Íslendingar. „Það hefur komið mér skemmtilega á óvart hve margir Íslendingar hafa látið sjá sig. Þarna er verið að gera grín að Íslendingum. Við erum náttúrulega mjög spes á margan hátt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.