Íslenski boltinn

Hallbera snýr aftur í Val

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hallbera Guðný, til vinstri.
Hallbera Guðný, til vinstri. Mynd/Arnþór
Hallbera Guðný Gísladóttir mun ganga til liðs við Val þegar að opnað verður fyrir félagaskipti á Íslandi þann 15. júlí næstkomandi.

Fram að því er Hallbera samningsbundin ítalska félaginu Torres en hún gekk nýverið í raðir ítölsku meistaranna.

Hallbera Guðný þekkir vel til í Val enda á hún 120 leiki að baki með félaginu í efstu deild. Hún er þar að auki margreynd landsliðskona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×