Fótbolti

Diego Costa kláraði Levante

Diego Costa fagnar í kvöld.
Diego Costa fagnar í kvöld.
Diego Costa getur ekki hætt að skora og hann skoraði sitt nítjánda mark í vetur er Atletico Madrid skellti Levante, 3-2, og komst á topp spænsku úrvalsdeildarinnar.

Andreas Ivanschitz kom Levante yfir strax í upphafi leiks en Diego Godin jafnaði fyrir hlé.

Það var svo Costa sem kom Atletico yfir í upphafi seinni hálfleiks. Atletico-menn voru ekki lengi í paradís því Pedri Rios jafnaði leikinn aðeins níu mínútur síðar. 2-2 og rúmur hálftími eftir.

Þrettán mínútum síðar skoraði Costa síðan sitt nítjánda mark í vetur er hann skoraði úr vítaspyrnu.

Atletico er með þriggja stiga forskot á Barcelona en Börsungar komast aftur á topp deildarinnar með sigri á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×