Fótbolti

Auðveldara að spila fyrir Real Madrid en Tottenham

Bale og Ronaldo fagna saman.
Bale og Ronaldo fagna saman.
Gareth Bale vex ásmegin með hverri vikunni hjá Real Madrid. Hann segir lífið vera einfaldara hjá Madrid þar sem ekki sé eins mikið stólað á hann þar og hjá Tottenham.

Walesverjinn bar Spurs-liðið á herðum sér síðasta vetur en hjá Real eru fleiri gæðaleikmenn sem taka á sig ábyrgð.

"Hjá Tottenham var ég alltaf að reyna að komast í boltann og koma einhverju í gang. Hjá Real eru allir í því hlutverki," sagði Bale.

"Það eru heimsklassamenn hjá okkur út um allan völl og því getur maður hugsað um sinn leik í stað þess að rífa allt liðið áfram. Ég virkilega nýt þess."

Eftir erfiða byrjun er Bale búinn að skora níu mörk fyrir Real í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×