Fótbolti

Alonso til í að semja aftur við Real

Alonso á ferðinni.
Alonso á ferðinni.
Talsverð óvissa hefur verið um framtíð miðjumannsins Xabi Alonso hjá Real Madrid. Nú bendir flest til þess að hann verði áfram hjá félaginu.

Samningur hans við Real rennur út næsta sumar. Hann hefur verið meiddur og vildi ekki ræða samningsmál á meðan hann var meiddur.

Hann þurfti að gangast undir tvær aðgerðir síðasta sumar til að laga náravandamál. Hann hefur því verið frá í fimm mánuði.

"Nú er rétti tíminn til þess að ræða við félagið um framtíðina. Mér fannst ekki rétt að ræða þessi mál á meðan ég var meiddur," sagði Alonso.

Alonso er orðinn 32 ára gamall og Real vill gera nýjan tveggja ára samning við hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×