Fótbolti

Stuðningsmenn Arsenal fá lögreglufylgd í kvöld

Stuðningsmenn Arsenal fagna.
Stuðningsmenn Arsenal fagna.
Það varð allt vitlaust fyrir fyrri leik Napoli og Arsenal í Meistaradeildinni. Stuðningsmenn Napoli réðust þá á stuðningsmenn Arsenal.

Menn höfðu því eðlilega áhyggjur fyrir síðari leikinn sem fer fram á Ítalíu í kvöld. Sú skynsamlega ákvörðun var tekin að halda stuðningsmönnum Arsenal frá stuðningsmönnum Napoli.

Ensku stuðningsmennirnir halda til á leyndum stað og þeir verða svo fluttir í lögreglufylgd á völlinn í kvöld.

Þar af leiðandi verða engin læti fyrir leik. Stuðningsmenn Arsenal fá einnig vernd eftir leik en um 700 þeirra ferðuðust til Napóli.

Arsenal dugar jafntefli í kvöld til þess að tryggja sér sigur í riðlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×