Fótbolti

Benitez: Wenger er besti stjórinn í enska boltanum

Benitez er hann var að stýra Chelsea.
Benitez er hann var að stýra Chelsea.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, mun hitta fyrir kunnuglegt andlit á hliðarlínunni í kvöld er Arsenal spilar gegn Napoli í Meistaradeildinni.

Þjálfari Napoli er Rafa Benitez, fyrrum stjóri Liverpool. Benitez ber Wenger vel söguna.

"Þetta gæti verið árið sem Arsenal fer alla leið í deildinni. Wenger er besti stjórinn í ensku úrvalsdeildinni að mínu mati," sagði Benitez.

Napoli verði að vinna í kvöld til þess að eygja möguleika á því að komast í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar.

"Arsenal mun reyna að halda boltanum og svo sækja hratt er færi gefst til. Við verðum samt að einbeita okkur að okkar leik. Ef við gefum ekki 100 prósent þá eigum við ekki möguleika," sagði Benitez.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×