Menning

Ragnar Kjartansson tilnefndur til Artes Mundi verðlaunanna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ragnar Kjartansson
Ragnar Kjartansson mynd/GVA
Ragnar Kjartansson er tilnefndur til myndlistaverðlaunanna Artes Mundi í Bretlandi en þau eru ein virtustu á Bretlandseyjum.

Verðlaunin eru aðeins afhent á tveggja ára fresti en tíu listamenn eru tilnefndir.

Verðlaunin eru sérstaklega ætluð þeim listamönnum sem hafa ekki vakið heimsathygli á sínu sviði. Vefur BBC greinir frá þessu í morgun.

Verðlaunin verða afhent í janúar árið 2015 og fær sigurvegarinn 40 þúsund pund eða tæplega átta milljónir í verðlaunafé.

Verk listamanna verða til sýnis í Cardiff, Wales í sautján vikur en alls bárust 800 tilnefningar frá 70 löndum.

Í augnablikinu er Ragnar með verk sitt The Visitor til sýnis  í gallerí Kling og Bang en hann var í ítarlegu viðtali við Fréttablaðið í lok nóvember.

Ragnar seldi á dögunum öll eintökin af The Visitor á rúmlega 80 milljónir íslenskra króna.

Hér að neðan má sjá hvaða listamenn eru tilnefndir:

CARLOS BUNGA (Portúgal)

OMER FAST (Ísrael)

THEASTER GATES (Bandaríkin)

SANJA IVEKOVIC (Króatía)

RAGNAR KJARTANSSON (Ísland)

SHARON LOCKHART (Bandaríkin)

RENATA LUCAS (Brasilía)

RENZO MARTENS (Holland)

KAREN MIRZA and BRAD BUTLER (Bretland)








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.