Fótbolti

Real Madrid missteig sig gegn Osasuna

Nordic Photos / AFP
Real Madrid lenti 2-0 undir gegn Osasuna á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í dag en náði jafntefli þrátt fyrir að misst Sergio Ramos af velli með rautt spjald.

Oriol Riera kom heimamönnum í 2-0 forystu með mörkum á fyrstu 38 mínútum leiksins. Útlitið dökknaði enn fyrir Real Madrid þegar að Ramos fékk seinna gula spjaldið sitt á 44. mínútu en Isco náði þó að minnka muninn fyrir gestina áður en flautað var til hálfleiks.

Francisco Silva, leikmaður Osasuna, fékk svo að líta sína aðra áminningu á 79. mínútu og var því jafnt í liðum. Aðeins mínútu síðar jafnaði varnarmaðurinn Pepe metin fyrir Real Madrid og tryggði liðinu jafntefli.

Real Madrid mistókst þó að jafna topplið Barcelona og Atletico Madrid að stigum en liðið er með 38 stig í þriðja sæti deildarinnar. Barcelona og Atletico eru með 40 stig og eiga bæði leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×