Fótbolti

Barcelona aftur á sigurbraut

Nordic Photos / Getty Images
Neymar skoraði bæði mörk Barcelona í 2-1 sigri á Villarreal í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Lionel Messi er enn frá vegna meiðsla en það kom ekki að sök í kvöld. Neymar skoraði fyrra markið úr vítaspyrnu á 30. mínútu en Mateo Musacchio jafnaði metin fyrir gestina í byrjun síðari hálfleiks.

Neymar skoraði svo sigurmarkið á 68. mínútu og þar við sat. Barcelona komst því aftur á sigurbraut eftir að hafa tapað sínum fyrsta deildarleik í síðustu umferð.

Barcelona er því eitt á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar með 63 stig. Atletico Madrid getur komist aftur upp að hlið Börsunga með sigri á Valencia annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×