Fótbolti

Ronaldo íhugar að skrópa á hóf FIFA

Portúgalinn Cristiano Ronaldo hefur ekki enn ákveðið hvort hann mæti á hófið þegar besti knattspyrnumaður heims verður krýndur.

Ronaldo er einn þriggja sem kemur til greina og margir veðja á að hann muni vinna kjörið að þessu sinni. Aðrir tilnefndir eru Lionel Messi og Franck Ribery.

Bæði Ronaldo og forráðamenn Real Madrid eru ekki kátur með FIFA og forsetann, Sepp Blatter, eftir að hann gerði grín að Ronaldo í ræðu á dögunum.

Kjörið fer fram í Zurich þann 13. janúar næstkomandi.

"Það eru enn einhverjir dagar í að ég þurfi að taka ákvörðun. Ég er enn að ræða þetta við forráðamenn félagsins," sagði Ronaldo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×