Fótbolti

Ronaldo hrósar Zidane

Portúgalanum Cristiano Ronaldo líður afar vel í herbúðum Real Madrid þessa dagana. Hann er ánægður með þjálfarann, Carlo Ancelotti, og ekki síður með aðstoðarþjálfarann, Zinedine Zidane.

"Zizou kemur með mikla reynslu inn í þjálfarateymið og á sérstaklega auðvelt með að hjálpa ungu mönnunum. Það er frábært," sagði Ronaldo um Frakkann.

"Mér finnst virkilega gaman að vinna með honum því hann var frábær leikmaður. Hann var einn sá besti og mér finnst best að vera í kringum slíka menn."

Ancelotti tók við í sumar og dró Zidane niður úr stúkunni og á bekkinn. Ronaldo hrósar líka Ítalanum.

"Hann er frábær maður. Hann var leikmaður sjálfur og veit því hvernig á að koma fram. Ég hef lært margt af honum. Ég gæti ekki verið ánægðari."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×