Fótbolti

Iniesta framlengir við Barcelona

Iniesta skorar úr víti.
Iniesta skorar úr víti.
Stuðningsmenn Barcelona fengu góða jólagjöf í dag þegar staðfest var að miðjumaðurinn Andres Iniesta hefði skrifað undir nýjan samning við félagið.

Gamli samningurinn átti að renna út sumarið 2015 en nýi samningurinn gildir til ársins 2018.

Iniesta hefur verið einn af lykilmönnum í stórkostlegu liði Barcelona síðustu ár. Hann hefur verið á meðal betri leikmanna heims og því afar mikilvægt fyrir Barcelona að halda honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×