Fótbolti

Motta: PSG vinnur Meistaradeildina

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Motta í leik með PSG
Motta í leik með PSG mynd/nordic photos/getty
Thiago Motta miðjumaður Frakklandsmeistara Paris Saint-Germain í fótbolta er ekki í nokkrum vafa með að PSG standi uppi sem sigurvegari í Meistaradeild Evrópu í vor. Hann segist að auki ekkert sjá eftir því að hafa valið Ítalíu fram yfir heimaland sitt Brasilíu.

PSG hefur byrjað Meistaradeildina frábærlega og náð í 13 stig í fimm fyrstu leikjum sínum og hefur tryggt sér sigur í riðlinum þegar ein umferð er eftir.

PSG komst í átta liða úrslit á síðustu leiktíð en tapaði þá fyrir Barcelona. Í ár er Motta sannfærður um að lið Laurent Blanc geti farið alla leið í keppninni.

„Ég er viss um að við munum vinna Meistaradeildina. Við erum með mjög sterkt lið. Markmiðið er að vera með í öllum keppnum í apríl,“ sagði Motta við fjölmiðla í Frakklandi.

Motta hefur leikið frábærlega með liðinu á leiktíðinni og honum líður mjög vel hjá félaginu eftir mörg erfið ár, þar á meðal eitt hjá Atletico Madrid 2007 til 2008 þar sem kom nærri því að hætta í boltanum.

„Mér líður vel hér og það er gott að finna mikilvægi sitt. Þetta er það sem ég vildi. Erfiðasta árið var þegar ég var hjá Atletico. Ég íhugaði að hætta í fótbolta en kom til baka sem sterkari leikmaður og sterkari persóna utan vallar.“

Motta lék tvisvar fyrir Brasilíu árið 2003 en hætti skömmu seinna að gefa kost á sér í landsliðið þegar hann flutti til Evrópu og gekk til liðs við Barcelona. Hann er nú með ítalskt ríkisfang og hefur leikið nokkra landsleiki fyrir Ítalíu.

„Þegar ég kom til Evrópu þá vildi ég ekki leika í treyju Selecao (brasilíska landsliðins). Í fullri hreinskilni og nú reyni ég eftir fremsta megni að komast í ítalska landsliðið,“ sagði Motta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×