Fótbolti

Ari lék allan leikinn í öruggum sigri

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
MYND/VALLI
Ari Freyr Skúlason var að vanda í liði OB sem skellti AGF 4-1 í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. OB fór upp um fimm sæti við sigurinn.

OB var komið niður í 10. sæti deildarinnar fyrir leikinn en AGF var í 5. sæti þremur stigum á undan í einkar jafnri deildinni.

Það var fljótt ljóst hvert í stefndi. Mostafa Abdellaoue skoraði strax á 5. mínútu og fimm mínútum síðar hafði Morten Skoubo bætt við marki en staðan í hálfleik var 2-0.

Á sjöttu mínútu seinni hálfleiks kom Rasmus Falk OB í 3-0 en tveimur mínútum síðar minnkaði Davit Devdariani muninn í tvö mörk.

Abdellaoue gerði út um leikinn á 66. mínútu og OB komið í 5. sæti deildarinnar með 22 stig, sæti á undan AGF sem er nú með jafn mörg stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×