Atlético betra en Barcelona og Real Madrid Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. desember 2013 15:15 Diego Costa er búinn að vera öflugur í vetur. Mynd/NordicPhotos/Getty
Atlético Madrid ætlar að blanda sér í hina hefðbundnu baráttu Barcelona og Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í vetur og gefur ekkert eftir hvort sem er í deild eða Evrópukeppni. Atlético Madrid hefur fengið fleiri stig en risaklúbbarnir þegar árangur úr spænsku deildinni og meistaradeildinni hefur verið lagður saman en þetta kemur fram í samantekt hjá Marca í dag. Barcelona er búið að tapa síðustu tveimur leikjum sínum á móti Athletic Bilbao (Spánn) og Ajax (Meistaradeildin) og það gaf Atlético tækifæri til að komast upp fyrir þá í heildarstigatöflunni. Atlético Madrid er með jafnmörg stig (40) og Barcelona á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar en Börsungar eru í toppsætinu þökk sé betri markatölu. Real Madrid er þremur stigum á eftir toppliðunum. Liðsmenn Atlético Madrid hafa síðan náð í 13 stig af 15 mögulegum í Meistaradeildinni sem þýðir að lærisveinar Diego Simone hafa alls 53 stig af 60 mögulegum í spænsku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu. Barcelona og Real Madrid hafa bæði 50 stig en öll liðin þrjú hafa tryggt sér sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar.Besti árangur spænsku liðanna 2013-14: 1. Atlético Madrid 53 stig (40 stig í deild - 13 stig í Meistaradeild) 2. Barcelona 50 stig (40 stig í deild - 10 stig í Meistaradeild) 3. Real Madrid 50 stig (37 stig í deild - 13 stig í Meistaradeild)
Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Fleiri fréttir „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Sjá meira