Fótbolti

Sjáið Kobe stelast inn á mynd af Messi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Youtube
Kobe Bryant og Lionel Messi eru tveir af þekktustu íþróttamönnum heims. Kobe hefur verið einn besti körfuboltamaður í heimi í langan tíma og Messi er að flestra mati besti knattspyrnumaður heims.

Kobe Bryant og Lionel Messi eru saman í aðalhlutverki í nýrri auglýsingu á vegum Turkish Airlines flugfélagsins þar sem þeir bregða á leik við það að vekja athygli á helstu áfangastöðum flugfélagsins.

Það hittist reyndar þannig á núna að þeir Bryant og Messi eru báðir meiddir og hafa því haft smá aukatíma til að bregða sér í í leikarahlutverkið.

Auglýsingin gengur út á meting á milli þeirra sem endar á sniðugan hátt þegar Kobe stelst inn á mynd af Messi. Það er hægt að sjá þessa auglýsingu hér fyrir neðan.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×