Fótbolti

Ronaldo vill enda ferilinn hjá Real Madrid

Margir stuðningsmenn Man. Utd voru vongóðir síðasta sumar um að Cristiano Ronaldo myndi snúa aftur á Old Trafford en af því varð ekki.

Þess í stað skrifaði Ronaldo undir nýjan samning við Real Madrid sem gildir til ársins 2018. Hann vill ljúka ferlinum hjá félaginu.

"Ég er mjög ánægður hjá félaginu og eins og mér líður núna þá kemur ekkert annað til greina en að klára ferilinn hér," sagði Ronaldo við fjölmiðla í heimalandinu.

"Ég elska að búa í Madrid. Ég er að spila fyrir besta félag heims og gæti ekki beðið um meira. Hér finnst mér ég vera elskaður og gæti ekki verið ánægðari."

Ronaldo er á sínu fimmta tímabili með félaginu eftir að hafa verið keyptur frá Man. Utd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×