Fótbolti

Messi vill vera hjá Barcelona allt sitt líf

Besti knattspyrnumaður heims, Argentínumaðurinn Lionel Messi, hefur verið í herbúðum Barcelona síðan hann var unglingur. Engar líkur eru á því að hann fari þaðan á næstunni.

Eðli málsins samkvæmt hafa önnur lið reynt að kroppa í hann en Messi hefur alltaf verið mjög ánægður í herbúðum Barca. Hann er þess utan samningsbundinn félaginu til ársins 2018.

"Það er mikill heiður í hvert skipti sem ég er orðaður við önnur stór lið. Það er satt að mörg lið hafa sýnt mér áhuga," sagði Messi.

"Það hefur samt ekkert breyst hjá mér. Leikstíll Barcelona hentar mér fullkomlega og það er minn draumur að vera hjá Barcelona allt mitt líf."

Messi er meiddur og mun ekki spila aftur fyrr en eftir áramót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×