Viðskipti erlent

Xbox One slær öll met

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fyrirtækið Microsoft seldi yfir eina milljón eintaka af nýju leikjatölvunni Xbox One á einum sólahring.

Xbox One braut þar með met Sony sem seldi einnig yfir eina milljón tölva fyrsta sólahringinn í síðustu viku en samkvæmt tölum ytra fengu fleiri sér Xbox One á fyrsta sólahringnum, en litlu munaði.

Þetta ku vera þriðja útgáfan af Xbox leikjatölvunni en nú eru átta ár síðan að fyrirtækið gaf út síðustu tölvu.

„Xbox One er uppseld hjá okkar birgjum í heiminum,“ segir í yfirlýsingu frá fyrirtækinu.

„Við erum að vinna hörðum höndum að því að koma fleiri eintökum í sölu til að mæta þeirri gríðarlegu eftirspurn sem er í heiminum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×