Fótbolti

Wenger: Við stjórnuðum leiknum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefði gjarnan viljað gera fyrr út um leikinn gegn Marseille í kvöld en var vitanlega ánægður með niðurstöðuna.

Arsenal tyllti sér á topp F-riðils með 2-0 sigri þar sem að Jack Wilshere skoraði bæði mörk sinna manna - það fyrra eftir 32 sekúndur.

„Við stjórnuðum leiknum en helst vantaði að klára færin og gera almennilega út um hann,“ sagði Wenger.

Þrátt fyrir sigurinn er Arsenal ekki öruggt áfram í 16-liða úrslitin. Dortmund og Napoli geta enn náð Lundúnarliðinu að stigum en Arsenal leikur gegn Napoli á Ítalíu í lokaumferðinni.

„Við erum nú með tólf stig eftir fimm leiki. Það er góður árangur og ég er viss um að okkur takist að ná að minnsta kosti stigi í Napólí í lokaumferðinni.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×